Ben Affleck og Jennifer Garner að skilja

Ben Affleck og Jennifer Garner hafa verið gift í 10 …
Ben Affleck og Jennifer Garner hafa verið gift í 10 ár. AFP

Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs eru þau Ben Affleck og Jennifer Garner að skilja eftir 10 ára hjónaband. Þessu var greint frá í bæði OK! Magazine og í National Enquirer fyrr í vikunni. 

Affleck og Garner gengu í hjónaband árið 2005 og eiga saman þrjú börn á aldrinum níu til þriggja ára. Fregnir herma að það hafi verið Garner sem sótti um skilnað frá Affleck eftir áralanga óánægju í hjónabandinu.

Talsmenn Affleck og Garner hafa enn ekki gefið frá sér tilkynningu um málið.

Affleck og Garner kynntust árið 2001 við gerð kvikmyndarinnar Pearl Harbor. Tveimur árum síðar léku þau saman í myndinni Daredevil og eftir það urðu þau par. Í apríl árið 2005 trúlofuðu þau sig svo og giftu sig tveimur mánuðum seinna.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur legið í dvala allt of lengi svo nú er komið að því að láta hendur standa fram úr ermum. Gefðu þér tíma til að sinna ungum sem öldnum í fjölskyldunni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg