Jóakim Danaprins og eiginkona hans Marie prinsessa skoðuðu Reykjavík í morgun og komu m.a. við í Hörpu þar sem þau kynntu sér húsið og starfsemi þess. Því næst skelltu þau sér í Skeifuna þar sem verslun Epal er. Ekki var annað að sjá en að þau kynnu vel við sig í Hörpu.
Tveggja daga opinber heimsókn Jóakims og Marie hófst í gær. Er heimsóknin hluti af 100 ára afmæli Dansk-Islandsk Samfund hvers tilgangur er að styrkja tengsl ríkjanna.
Þau fóru í Norræna húsið í gærkvöldi en í morgun fóru þau í bíltúr um Reykjavík þar sem þau skoðuðu áhrif dansks arkitektúrs. Eins og fyrr segir heimsækja þau nú Hörpu en seinna í dag munu þau fara í verslunina Epal.