Rapparinn Kanye West hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarið og tuðað yfir öllu mögulegu, allt frá Taylor swift, til lélegra kjara kennara. Þá hefur hann einnig lýst því yfir að hann sé stórskuldugur og biðlað til auðmanna að koma sér til hjálpar auk þess að tjá sig um Bill Cosby.
Frétt mbl.is: Segir Kanye þurfa á hjálp að halda
Eiginkona rapparans, raunveruleikastjarnan Kim Kardashian, er að sögn ekki ýkja hrifin af gjörðum eiginmannsins.
„Þó að Kim sé mjög stuðningsrík eiginkona, sem kvartar sjaldan, er hún ekki hrifin af samfélagsmiðlasögunum“ lýsti ónafngreindur heimildarmaður tímaritsins People yfir.
Kardashian er yfirleitt sögð vera róleg yfir sérvisku eiginmannsins, en tíð rifrildi hans á samfélagsmiðlum fara fyrir brjóstið á henni.
„Áráttukennd tíst Kanye eru farin að valda erfiðleikum í hjónabandinu. Kim þolir þau ekki. Hún hefur ekkert á móti því að hann veki athygli á sjálfum sér, en kann ekki að meta Twitter-rifrildi.“
Frétt mbl.is: Hvað er málið með Taylor og Kanye?