Láku persónulegum upplýsingum leikara Game of Thrones

Meðal þeirra gagna sem tölvuþrjótarnir stálu voru persónulegar upplýsingar um …
Meðal þeirra gagna sem tölvuþrjótarnir stálu voru persónulegar upplýsingar um leikarana í Game of Thrones.

Tölvuþrjótar hafa birt persónuleg símanúmer stjarnanna í Game of Thrones, tölvupósta HBO og handrit. Krefjast ódæðismennirnir lausnargjalds uppá margar milljónir bandaríkjadollara til að koma í veg fyrir birtingu heilla sjónvarpsþátta og meiri upplýsinga.

Forsvarsmenn HBO-sjónvarpsstöðvarinnar greindu frá því í síðustu viku að tölvuárás hefði verið gerð á fyrirtækið. 

Í fimm mínútna myndbandi les einhver sem kallar sig Mr. Smith upp yfirlýsingu til Rich­ard Plepler for­stjóra HBO, þar sem fram kemur að fyrirtækið verði að borga þrjótunum gjaldið á næstu þremur dögum til að koma í veg fyrir frekari leka.

Tölvuþrjótarnir halda því fram að þeir hafi stolið 1,5 terabætum af gögnum, sem jafngildir nokkrum sjónvarpsþáttaröðum og milljónum skjala. Aftur á móti segjast forsvarsmenn stöðvarinnar ekki trúa því að brotist hafi verið í allt tölvupóstakerfi þeirra, þó að einhverju einka­rétt­ar­vörðu efni fyrirtækisins hafi vissulega verið stolið.

HBO segist nú vinna með bandarísku lögreglunni og netöryggissérfræðingum til að komast til botns í málinu.

Frétt Guardian.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson