Khloe staðfestir óléttuna

Khloe Kardashian á von á sínu fyrsta barni.
Khloe Kardashian á von á sínu fyrsta barni. mbl.is/AFP

Raunveruleikastjarnan og Kardashian-systirin Khloe hefur staðfest að hún beri barn undir belti.

Sögusagnir þess efnis hafa gengið frá því í haust en nú hefur Khloe birt mynd á Instagram þar sem hún segir að stærsti draumur sinn hafi ræst. Slúðurmiðlar í Hollywood halda vart vatni yfir tilkynningunni. 

<div> <div></div> </div>

<a href="https://www.instagram.com/p/Bc8PFjuFjlp/" target="_blank">My greatest dream realized! We are having a baby! I had been waiting and wondering but God had a plan all along. He knew what He was doing. I simply had to trust in Him and be patient. I still at times can't believe that our love created life! Tristan, thank you for loving me the way that you do! Thank you for treating me like a Queen! Thank you for making me feel beautiful at all stages! Tristan, most of all, Thank you for making me a MOMMY!!! You have made this experience even more magical than I could have envisioned! I will never forget how wonderful you've been to me during this time! Thank you for making me so happy my love! Thank you to everyone for the love and positive vibes! I know we've been keeping this quiet but we wanted to enjoy this between our family and close friends as long as we could privately. To enjoy our first precious moments just us ❤️ Thank you all for understanding. I am so thankful, excited, nervous, eager, overjoyed and scared all in one! But it's the best bundle of feelings I've ever felt in my life! ❤️❤️❤️</a>

A post shared by <a href="https://www.instagram.com/khloekardashian/" target="_blank"> Khloé</a> (@khloekardashian) on Dec 20, 2017 at 2:41pm PST

„Ég hef verið að bíða og velta þessu fyrir mér en Guð hefur haft áætlun allan þennan tíma. Hann vissi hvað hann var að gera. Ég þurfti einfaldlega að treysta honum og vera þolinmóð,“ skrifar Khloe við myndina.

Það voru þó fleiri en Guð sem lögðu hönd á plóg í verkefninu en Khloe þakkar Tristan Thompson, kærasta sínum, fyrir að elska sig og koma fram við sig eins og drottningu. Fyrst og fremst þakkar hún honum þó fyrir að gera sig að móður.

Khloe og NBA-leikmaðurinn Tristan hafa verið sam­an í rúmt ár. Þetta er fyrsta barn Khloe en Tristan á fyr­ir ársgamlan son sem hann eignaðist með fyrr­ver­andi kær­ustu sinni.

Barnalánið leikur við Kardashian-fjölskylduna þessa dagana, en auk Khloe á Kim Kar­dashi­an von á þriðja barni sínu, með aðstoð staðgöngumóður, í janúar.

Þá hafa einnig heyrst háværar raddir þess efnis að Kylie Jenner, hálfsystir Kim og Khloe, eigi von á barni ásamt kærasta sínum, Travis Scott, í febrúar. Þær fregnir hafa þó ekki verið staðfestar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes