Leikarinn Gerard Butler var spurður óþægilegra spurninga í þætti Andy Cohen í vikunni. Það er nokkuð ljóst að leikarinn Brad Pitt hefði ekki viljað svara einni spurningunni sem Butler var spurður.
Butler var spurður hvort væri betra að kyssa Angelinu Jolie eða Jennifer Aniston. Brad Pitt var giftur leikkonunum en hann er ekki sá eini sem þekkir þær báðar. Butler lék í Bonty Hunter með Ansiton og með Jolie í Lara Croft Tomb Raider: The Cradle of Life.
Butler hafði ekki möguleikann á því að segja pass og þurfti að velja. „Jennifer Aniston,“ sagði hann að lokum.