Fangar með 14 tilnefningar

Nína Dögg Filippusdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir …
Nína Dögg Filippusdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir eru allar þrjár tilnefndar fyrir leik sinn í Föngum, en sjónvarpsþáttaröðin hlýtur flestar Eddu-tilnefningar þetta árið, samtals 14. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir

Sjónvarpsþáttaröðin Fangar hlýtur flestar tilnefningar til Edduverðlaunanna í ár, samtals 14. Röðin er tilnefnd sem sjónvarpsefni ársins, leikið sjónvarpsefni, fyrir leikstjórn, handrit, leik kvenna í aukahlutverki, kvikmyndatöku, klippingu, hljóð, leikmynd, búninga, gervi og tónlist.

Edda Björgvinsdóttir er tilnefnd fyrir leik sinn í Undir trénu, …
Edda Björgvinsdóttir er tilnefnd fyrir leik sinn í Undir trénu, en myndin hlýtur samtals 12 tilnefningar.

Fast á hæla Föngum fylgir kvikmyndin Undir trénu með 12 tilnefningar. Myndin er ásamt Svaninum og Vetrarbræðrum tilnefnd sem mynd ársins og síðan tilnefnd fyrir leikstjórn, handrit, leik í aðal- og aukahlutverki, klippingu, hljóð, brellur, leikmynd og tónlist.

Gríma Valsdóttir er tilnefnd fyrir leik sinn í Svaninum, en …
Gríma Valsdóttir er tilnefnd fyrir leik sinn í Svaninum, en myndin hlýtur alls níu tilnefningar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni (ÍKSA) þar sem allar tilnefningar ársins eru kynntar. Alls verða veitt verðlaun í 26 flokkum auk heiðursverðlauna á Edduverðlaunahátíðinni sem fram fer 25. þessa mánaðar á hótel Hilton Reykjavík Nordica og sýnd er beint á RÚV.

Bætt hefur verið einum flokki milli ára, þ.e. upptöku- eða útsendingastjórn. Líkt og á síðasta ári gefst almenningi kostur á að kjósa um sjónvarpsefni ársins.

Heiða Rún Sigurðardóttir er tilnefnd fyrir túlkun sína á Stellu …
Heiða Rún Sigurðardóttir er tilnefnd fyrir túlkun sína á Stellu Blómkvist, en samnefnd sjónvarpsþáttaröð hlýtur alls átta tilnefningar.

Kvikmynd

  • Svanurinn
  • Undir trénu
  • Vetrarbræður


Leikstjórn

  • Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn 
  • Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu 
  • Ragnar Bragason fyrir Fanga


Leikari í aðalhlutverki

  • Elliott Crosset Hove fyrir Vetrarbræður 
  • Jóhannes Haukur Jóhannesson fyrir Ég man þig 
  • Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Undir trénu


Leikkona í aðalhlutverki

  • Edda Björgvinsdóttir fyrir Undir trénu 
  • Gríma Valsdóttir fyrir Svaninn 
  • Heiða Rún Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist


Leikari í aukahlutverki

  • Lars Mikkelsen fyrir Vetrarbræður 
  • Sigurður Sigurjónsson fyrir Undir trénu 
  • Þorsteinn Bachmann fyrir Undir trénu


Leikkona í aukahlutverki

  • Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Fanga 
  • Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Fanga 
  • Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Fanga


Handrit

  • Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn
  • Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu 
  • Margrét Örnólfsdóttir og Ragnar Bragason fyrir Fanga


Kvikmyndataka

  • Jakob Ingimundarson fyrir Ég man þig 
  • Martin Neumeyer fyrir Svaninn
  • Árni Filippusson fyrir Fanga


Klipping

  • Guðni Hilmar Halldórsson og Gunnar B. Guðbjörnsson fyrir Stellu Blómkvist 
  • Kristján Loðmfjörð fyrir Undir trénu 
  • Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson og Sverrir Kristjánsson fyrir Fanga


Hljóð

  • Björn Viktorsson, Frank Mølgaard Knudsen og Sylvester Holm fyrir Undir trénu 
  • Huldar Freyr Arnarson, Pétur Einarsson og Daði Georgson fyrir Fanga
  • Tina Andreas fyrir Svaninn


Tónlist

  • Daníel Bjarnason fyrir Undir trénu 
  • Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason fyrir Svaninn 
  • Pétur Ben fyrir Fanga


Brellur

  • Kontrast, Davíð Jón Ögmundsson, Sigurgeir Arinbjarnarson og Arnar Jónsson fyrir Stellu Blómkvist 
  • Pétur Karlsson fyrir Svaninn
  • The Gentlemen Broncos, Alexander Schepelern, Emil Pétursson og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu


Leikmynd

  • Haukur Karlsson fyrir Stellu Blómkvist 
  • Heimir Sverrisson fyrir Fanga
  • Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu


Gervi

  • Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Out of Thin Air 
  • Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist 
  • Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Fanga


Búningar

  • Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Stellu Blómkvist 
  • Helga Rós V. Hannam fyrir Fanga
  • Sylvia Dögg Halldórsdóttir fyrir Svaninn


Heimildarmynd

  • Háski fjöllin rumska
  • Out of Thin Air
  • Reynir sterki


Stuttmynd

  • Atelier
  • Frelsun
  • Munda

Frétta- eða viðtalsþáttur

  • Auðæfi hafsins 2
  • Fósturbörn
  • Kveikur


Mannlífsþáttur

  • Hæpið
  • Leitin að upprunanum
  • Paradísarheimt
  • Ævar vísindamaður
  • Ævi


Menningarþáttur

  • Framapot
  • Kiljan
  • Klassíkin okkar
  • Opnun
  • Tungumál framtíðarinnar


Skemmtiþáttur

  • Andri á flandri í túristalandi
  • Áramótaskaup 2017
  • Hulli 2


Sjónvarpsmaður

  • Guðrún Sóley Gestsdóttir fyrir Kastljós og Menninguna
  • Sigríður Halldórsdóttir fyrir Ævi
  • Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Leitina að upprunanum
  • Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar
  • Unnsteinn Manuel Stefánsson fyrir Hæpið


Upptöku- eða útsendingastjórn

  • Helgi Jóhannesson fyrir Njálu 
  • Helgi Jóhannesson og Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Söngvakeppnina 2017
  • Jón Haukur Jensson fyrir Voice Live
  • Þór Freysson fyrir Kórar Íslands
  • Þór Freysson fyrir Nýrdönsk: sjálfshátíð í sjónvarpssal


Barna- og unglingaefni

  • Loforð
  • Sumarbörn
  • Örkin


Leikið sjónvarpsefni

  • Fangar
  • Loforð
  • Stella Blómkvist

Sjónvarpsefni ársins 

  • Fangar
  • Fósturbörn
  • Kveikur
  • Leitin að upprunanum
  • Loforð
  • Opnun
  • Stella Blómkvist
  • Ævi
  • Örkin
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson