Leikarahjónin fyrrverandi Jennifer Aniston og Brad Pitt voru eitt dáðasta stjörnupar allra tíma. Eftir að fréttir bárust af því í gær að Aniston og Justin Theroux væru að skilja sáu aðdáendur hennar tækifæri í skilnaðinum.
Brad Pitt og Jennifer Aniston tilkynntu skilnað sinn í byrjun árs 2005 en stuttu seinna sást Pitt með Angelinu Jolie. Jolie sótti hins vegar um skilnað frá Pitt haustið 2016. Síðan þá hefur Pitt ekki átt í alvarlegu sambandi.
Aniston greindi frá því í viðtali árið 2015 að þau Pitt væru enn í sambandi samkvæmt E!. Hún vonaðist þó til þess að heimurinn hætti þessum sápuóperudraumi um að þau byrjuðu aftur saman. Aniston varð ekki að ósk sinni og fór fólk á flug í gærkvöldi eftir fréttirnar um að Ansiton og Theroux væru hætt saman.
Brad Pitt and Jennifer Aniston are getting back together. I called it first. #JenniferAniston pic.twitter.com/2BPeomEwbi
— marissa (@mersshhh) February 15, 2018
So #JenniferAniston and Brad Pitt are both single now pic.twitter.com/ldeU7JL7aj
— Glambergirlblog (@glambergirlblog) February 15, 2018
Brad Pitt about to drive by Jennifer's house like...#JenniferAniston pic.twitter.com/TRNL9LQaq7
— Jackie (@Jackieannroth) February 15, 2018
When Brad finds out. #bradpitt #jenniferaniston pic.twitter.com/6E6o1W8Tvz
— Andi Beck (@Andibeck1) February 16, 2018