Einungis 16 kílóum þyngri en sonurinn

Kourtney Kardashian er hvorki há í loftinu né þung.
Kourtney Kardashian er hvorki há í loftinu né þung. AFP

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian hefur lengi verið þekkt fyrir einstaklega mikinn áhuga á heilsu og hreyfingu. People greinir frá því að elsta Kardashian-systirin hafi viðurkennt við upptökur á þættinum Keeping Up with the Kardashians að hún væri bara 44 kíló. 

Stjarnan á þrjú börn en hinn átta ára gamali Mason er elsta barn hennar. Mason er venjulegur átta ára gamall strákur og er 28 kíló sem þýðir að mamma hans er aðeins 16 kílóum þyngri en hann. 

Kardashian sem er 38 ára er dugleg að leyfa aðdáendum sínum að fylgjast með því hvernig hún hugar að heilsunni. Eftir að hún eignaðist þriðja barn sitt í desember 2014 var hún dugleg að sýna frá hvernig henni gengi að komast aftur í form. Nokkrum mánuðum eftir fæðinguna eða í apríl 2015 var hún orðin 52 kíló. Hún varði sig þó með því að hún væri ekki há í loftinu en Kardashian er bara 152 sentímetrar.

mujer feliz

A post shared by Kourtney Kardashian (@kourtneykardash) on Jan 25, 2018 at 2:10pm PST



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson