Drottningarnar sátu hlið við hlið

Elísabet Englandsdrottning í góðum félagsskap Önnu Wintour.
Elísabet Englandsdrottning í góðum félagsskap Önnu Wintour. AFP

Hin 91 árs gamla Elísabet Englandsdrottning sat á fremsta bekk á tískuvikunni í London á mánudag. Við hliðina á henni sat önnur drottning, ritstýran Anna Wintour. 

Ólíkt Elísabetu er Wintour ekki alvörudrottning þótt það megi segja að hún sé ókrýnd drottning tískunnar. Þykir Wintour jafnframt köld og er hún stundum kölluð ísdrottningin. 

Elísabet virtist kunna vel við félagsskapinn og mátti sjá drottningarnar tvær brosa og spjalla saman. Fylgdust þær með tískusýningu Richard Quinn en Elísabet veitti honum verðlaun á sviði breskrar fatahönnunar. 

Drottningarnar virtust skemmta sér vel saman.
Drottningarnar virtust skemmta sér vel saman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson