Borðar fylgjuna eftir fæðinguna

Khloe Kardashian á von á sínu fyrsta barni.
Khloe Kardashian á von á sínu fyrsta barni. mbl.is/AFP

Khloé Kardashian á von á sínu fyrsta barnið með kærasta sínum, Tristan Thompson. Barnið mun fæðast í Cleveland en parið býr þar þar sem Thompson leikur með Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni. Raunveruleikastjarnan er á fullu að undirbúa fæðinguna. 

Rétt eins og systir hennar Kim Kardashian ætlar Khloé að borða fylgjuna eftir fæðinguna. Fylgjan verður þó sett í töfluform áður en hún borðar hana. „Fylgjan mín var eins og tvöföld í stærð, hún var óvenjulega stór, svo hún gaf mér tvær krukkur,“ sagði Kim systur sinni í þætti af Keeping Up with the Kardashians eins og fram kemur á vef Daily Mail

Kardashian systurnar eru ekki einu stjörnurnar sem eru hrifnar af fylgjuáti. Eiginkonur þekktra fótboltamanna eins og Coleen Rooney og Rebekah Vardy hafa einnig borðað fylgjurnar í töfluformi.

Á meðan fyrrnefndar konur hafa valið að innbyrgða fylgjuna í töfluformi sagðist Tom Cruise ætla að borða fylgjuna á staðnum þegar Katie Holmes eignaðist dóttur þeirra, Surie Cruise á sínum tíma. 

Fylgjuna má þó ekki bara borða heldur má gróðursetja hana eða að minnsta kosti gerði leikarinn Matthew McConaughey. Hann fékk hugmyndina eftir að hafa séð fylgjutré á ferðum sínum í Ástralíu. 

Matthew McConaughey.
Matthew McConaughey. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson