Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson tekur þátt nýrri í auglýsingaherferð Pepsi fyrir Pepsi Max. Meðal annarra leikmanna í stjörnuliði Pepsi MAX eru Lionel Messi, Toni Kroos, Marcelo, Dele Alli og Carli Lloyd.
Ljósmyndir af leikmönnunum eru skreyttar hönnun hönnuðar frá heimalandi hvers og eins. Hér á Íslandi var það hönnuðurinn Siggi Eggertsson sem var valinn til samstarfs en Siggi hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín.
Grafík Sigga er innblásin af eldfjöllum og jöklum Íslands og undirstrikar hæfileika Gylfa til að bræða varnarmenn andstæðinganna og skilja markverði eftir frosna á línunni.