Chris Evans og Jenny Slate eru hætt saman í annað skiptið á um einu ári. Captain America-leikarinn greindi frá þessu í viðtali við The Times en hann og grínistinn og leikkonan byrjuðu fyrst saman árið 2016.
Í viðtalinu tjáir Evans sig ekki beint um sambandsslitin heldur skrifar blaðamaðurinn að þau hafi nýlega hætt saman. Evans og Slate byrjuðu að hittast eftir að þau kynntust við tökur á myndinni Gifted. Þau hættu hins vegar saman snemma árs 2017 og eru nú ári seinna aftur hætt saman.
Eftir að þau hættu saman í fyrra lýsti Evans því í viðtali við USA Today að sambönd væru snúin. Hann sagðist þó vera endalaust þakklátur fyrir að hafa hitt Slate og hún yrði alltaf í lífi hans.