Hvert verður framhaldið?

Sara Danius, ritari Sænsku akademíunnar, og Karl XVI. Gústaf Svíakonungur …
Sara Danius, ritari Sænsku akademíunnar, og Karl XVI. Gústaf Svíakonungur funduðu um hina alvarlegu stöðu um helgina. Sá armur akademíunnar sem styður hjónin Katarinu Frostenson og Jean-Claude Arnault og vill ekki fara að ráðum lögfræðistofunnar Hamarskiöld & Co hyggst funda í dag hvort Danius njóti enn trausts þeirra. Ljósmynd/Kungahuset.se

Ófremdarástand ríkir innan Sænsku akademíunnar, sem frá 1901 hefur ár hvert veitt Nóbelsverðlaun í bókmenntum. Líkt og greint var frá í Morgunblaðinu á mánudag ákváðu þrír meðlimir akademíunnar, þeir Peter Englund, Klas Östergren og Kjell Espmark, að hætta störfum fyrir Sænsku akademíuna undir lok síðustu viku í kjölfarið á miklum átakafundi innan akademíunnar. Jafnframt hefur Sara Stridsberg (sem valin var inn í akademíuna 2016) upplýst að hún íhugi að hætta.

Gæti orðið óstarfhæf

Sem stendur eru því fimm af 18 stólum innan akademíunnar auðir. Það helgast af því að auk þeirra Östergren (sem valinn var inn 2014), Englund (2002), og Espmark (1981) hafa áður sagt skilið við akademíuna þær Lotta Lotass (2009) sem hætti árið 2015 og Kerstin Ekman (1978) sem hætti 1989. Báðar hættu þær vegna óánægju sinnar með vinnubrögðin innan akademíunnar.

Velji tveir til viðbótar að hætta í akademíunni gæti það gert hana óstarfhæfa. Ástæðan er sú að meðlimir Sænsku akademíunnar eru skipaðir ævilangt, sem þýðir að ekki er hægt að skipta meðlimum út ef þeir kjósa að hætta, eru reknir úr henni eða geta ekki sinnt störfum sínum fyrir akademíuna af heilsufarsástæðum. Hreinan meirihluta eða átta atkvæði þarf til að kjósa nýjan Nóbelsverðlaunahafa, en aukinn meirihluta eða 12 atkvæði þarf til að geta tekið inn nýja meðlimi.

Ljóðskáldið Katarina Frostenson hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2016 og tók …
Ljóðskáldið Katarina Frostenson hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2016 og tók við þeim úr hendi rithöfundarins og fyrri vinningshafa, Kim Leine (sem sjá má í bakgrunni). Ljósmynd/Magnus Fröderberg/norden.org

Lak nöfnum vinningshafa

Ástæðu upplausnarástandsins nú má rekja til þess að í nóvember á síðasta ári greindi sænska dagblaðið Dagens Nyheter frá því að 18 konur hefðu sakað Jean-Claude Arnault, sem verið hefur mjög áhrifamikill í sænsku bókmenntalífi um árabil, um kynferðislega áreitni og áttu sum brotanna að hafa verið framin í íbúð í eigu akademíunnar. Arnault er giftur skáldkonunni Katarinu Frostenson (valin inn í akademíuna 1992). Þau hjónin hafa um langt árabil rekið bókmenntaklúbbinn Forum, sem þau eiga, og notið góðs af fjárframlögum frá akademíunni.

Tveimur dögum eftir að lögreglan hóf rannsókn á ásökunum kvennanna í desember sleit Sænska akademían öll tengsl sín við Arnault. Sara Danius (valin 2013), sem fyrst kvenna tók við stöðunni sem ritari Sænsku akademíunnar 2015, fordæmdi háttalag Arnault og ákvað akademían í framhaldinu að ráða lögfræðistofuna Hammarskiöld & Co til að rannsaka tengsl Arnault við alla meðlimi akademíunnar. Samkvæmt úttekt lögfræðistofunnar, sem Dagens Nyheter komst yfir, á Arnault ítrekað að hafa lekið nafni komandi Nóbelsverðlaunaskálds og á þetta við um vinningshafana Wislawa Szymborska (1996), Elfriede Jelinek (2004), Harold Pinter (2005), Jean-Marie Gustave Le Clézio (2008), Patrick Modiano (2014), Svetlana Aleksijevitj (2015) og Bob Dylan (2016). Vegna leka lögfræðiálitsins til Dagens Nyheter er Horace Engdahl (valinn inn 1997) æfur út í Danius og lýsir henni í fjölmiðlum sem verstum ritara og talsmanni akademíunnar síðan til hennar var stofnað 1786.

Ásakanir allt frá 1997

Um helgina greindi Svenska Dagbladet (SvD) frá því að lögfræðistofan mælti með því að akademían kærði forsvarsmann bókmenntaklúbbsins Forum til lögreglunnar vegna upplýsingaleka og óeðlilegra fjárhagstengsla gegnum Frostenson, en akademían hefur valið að fara ekki að ráðum lögfræðinganna. Í framhaldinu var krafist atkvæðagreiðslu (sem ávallt eru leynilegar) innan akademíunnar um veru Frostenson og var niðurstaðan sú að Englund, Östergren, Espmark og Per Wästberg (valinn 1997) ásamt tveimur öðrum ónafngreindum meðlimum akademíunnar vildu láta reka Frostenson úr akademíunni, en átta meðlimir lögðust gegn brottvísun. Þetta eru þau Sture Allén (1980), Göran Malmqvist (1985), Horace Engdahl (1997), Bo Ralph (1999), Kristina Lugn (2006), Anders Olsson (2008), Tomas Riad (2011) og Jayne Svenungsson (2017).

Í viðtali við SvD segist Wästberg ekki ætla að hætta í akademíunni þar sem hann vill styðja Danius, en samkvæmt heimildum Expressen vill Danius að Frostenson víki sæti vegna málsins. Þess má geta að árið 1997 fékk Allén, sem þá var ritari akademíunnar, bréf frá konu sem lýsti kynferðislegu ofbeldi sem Arnault beitti hana í húsakynnum Forum þar sem hún starfaði, en Allén valdi að gera ekkert með þær upplýsingar. Expressen fjallaði það sama ár um málið í tveimur ítarlegum greinum.

Til marks um alvarleika krísunnar sem Sænska akademían stendur frammi fyrir má nefna að Danius fundaði með Karli XVI. Gústafi Svíakonungi á sunnudag, en það var Gústaf III. sem stofnaði Sænsku akademíuna 1786. Eftir fundinn sagðist Svíakonungur, í viðtali við sænska fjölmiðla, binda vonir við að hægt yrði að finna farsæla lausn á málinu, enda um mikilvæga stofnun að ræða. Sagði hann að honum væri haldið upplýstum um stöðu mála.

Danius hefur ekki viljað ræða við fjölmiðla eftir fundinn, en í samtali við Expressen segir Margarethea Söderlig, aðstoðarkona hennar, að svara sé að vænta síðar, en á núverandi tímapunkti séu „margir boltar á lofti“ án þess að vilja útskýra nánar hvað felist í þeim orðum. Í samtali við SvD í gær upplýsti Allén að áttmenningarnir sem styðja Frostenson hyggjast funda í dag um það hvort Danius njóti enn trausts þeirra. Samkvæmt fréttaflutningi ytra treysta áttmenningarnir á stuðning Svíakonungs, sem er verndaði akademíunnar. Fundað mun hafa verið stíft hjá hirðinni um það hvort og hvernig hann geti gripið inn í atburðarásina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes