Raunveruleikaþáttastjarnan Khloé Kardashian og körfuboltaleikmaðurinn Tristan Thompson eru búin að vera í sambandsráðgjöf samkvæmt vinkonu fjölskyldunnar. Lisa Stanley, vinkona Kris Jenner, mömmu Khloé, sagði í viðtali á KIIS FM að Khloé hafi alltaf ætlað að láta sambandið ganga upp. Tristan hélt fram hjá Khloé á meðan hún var ólétt og birtust myndbönd af honum og öðrum konum stuttu áður en þau eignuðust sitt fyrsta barn saman í apríl.
Stanley sagði í viðtalinu að Khloé hefði áður verið niðurlægð af fyrrverandi eiginmanni sínum Lamar Odom. Þrátt fyrir að hafa aftur verið niðurlægð opinberlega ætli hún að láta sambandið með Tristan ganga.