Það er ekki alltaf allt sem sýnist hjá fína og fræga fólkinu. Náinn vinur Kardashian-fjölskyldunnar sagði við Us Weekly að Tristan Thompson, kærasti Khloé Kardashian sé ekki ánægður með samband þeirra. Þau hafa verið í sambandsráðgjöf, en Tristan hélt fram hjá Khloé í apríl, stuttu áður en þau áttu sitt fyrsta barn saman. Tristan er nú hættur að mæta með Khloé í tímana hjá ráðgjafanum.
Í júní flutti parið heim til Los Angeles þar sem fjölskylda Khloé er staðsett. Þau bjuggu fyrstu mánuði dóttur þeirra, True, í Cleveland en Tristan spilar körfubolta með Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni.
Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly finnst Tristan að hann sé fastur í óhamingjusömu sambandi og vill komast úr því og fara heim til Cleveland sem fyrst.