Bandaríska sjónvarpsstöðin The CW hefur gefið út að leikkonan Ruby Rose muni fara með hlutverk leðurblökukonunnar í nýrri þáttaröð. Leðurblökukonan mun hefja göngu sína á The CW í byrjun árs 2019.
Ruby Rose er best þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum Orange is the New Black á Netflix. Rose segir á Instagram-síðu sinni að æskudraumur hennar sé að rætast. Leðurblökukonan verður samkynhneigð, en það er Rose einnig. Þetta mun verða fyrsta ofurhetjuþáttaröðin með LGBT-ofurhetju. „Þetta er eitthvað sem ég myndi hafa dáið fyrir að sjá í sjónvarpinu þegar ég var ung og hluti af hinsegin samfélaginu, sem aldrei sá hinsegin hlutverk í sjónvarpinu og leið einni og öðruvísi,“ skrifar Rose á Instagram.
A post shared by Ruby Rose (@rubyrose) on Aug 7, 2018 at 10:53am PDT