Lof mér að falla, nýjasta kvikmynd Baldvins Z, hefur verið valin á Kvikmyndahátíðina í Toronto sem fram fer 6.-16. september.
Myndin, sem verður frumsýnd hér á landi 7. september, segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.
Handrit bíómyndarinnar er skrifað af leikstjóranum Baldvin Z og Birgi Erni Steinarssyni eða Bigga í Maus eins og hann er oftast kallaður. Þetta er ekki þeirra fyrsta samstarf því saman gerðu þeir handritið að Vonarstræti sem fékk mikið lof þegar hún kom út.
Með aðalhlutverk í Lof mér að falla eru leikkonurnar Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir en leikarinn Þorsteinn Bachman fer einnig með stórt hlutverk. Í myndinni fara einnig með hlutverk Sturla Atlason, Edda Björgvinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Halldór Halldórsson.
Hér má sjá stiklu úr myndinni: