Fréttir berast af því að samband stjörnuparsins Bradley Cooper og Irinu Shayk sé í molum. Page Six greindi frá því í vikunni að parið sem eignaðist barn fyrir ári hafi litið út fyrir að vera í fýlu þar sem þau voru úti að borða í vikunni.
Nú segir heimildarmaður að leikaranum og fyrirsætunni líði ekki vel saman. „Þeim líður ömurlega saman. Þeim hefur gert það í mánuði. Hann drekkur ekki og er fyrir andleg málefni. Hún vill fara út,“ sagði heimildarmaðurinn og bætti við að Shayk hefði farið ein til Ibiza til að fara í partý.
„Þau litu ekki út fyrir að vera glöð,“ sagði annar heimildarmaður þegar þau fóru út að borða í vikunni. „Þau töluðu varla við hvort annað í byrjun máltíðarinnar. Þegar þau voru hálfnuð byrjaði hún að horfa til hliðar og hann var þunglyndislegur.“
Parið hefur sést saman eftir leiðinlega kvöldmatinn svo kannski áttu þau bara slæman dag. Að minnsta kosti segir annar heimildarmaður að ekkert sé hæft í því að ástarblossinn sé að slokkna.