Björgvin Halldórsson segir mikilvægt að sá sem vinnur Jólastjörnuna búi yfir útgeislun og öryggi. Björgvin er einn af dómurum í Jólastjörnunni sem sýnd verður í Sjónvarpi Símans í ár. Í þáttunum keppa krakkar 14 ára eða yngri um að fá að syngja með Björgvini og öðru tónlistarfólki á jólatónleikum hans í Hörpu fyrir jól.
Björgvin segist hafa verið sísönglandi sem barn. Hann hafi ruggað sér fram og aftur sem barn og sungið með útvarpinu. Hann söng hins vegar fyrst opinberlega á skólaballi með fyrstu hljómsveitinni sem hann var í, Bendix.
„Það er alltaf spenningur í manni er stigið er á svið en um leið og maður er byrjaður að syngja hverfur stressið,“ segir Björgvin þegar hann er spurður hvort hann verði enn stressaður á sviði.
Björgvin segir að margt geti komið fyrir á sviðinu og einu sinni lenti hann í því að gleyma öllum textanum sínum á mikilli söngskemmtun. „En svo allt í einu rifjaðist allt upp fyrir mér og ég datt inn í lagið,“ segir Björgvin og málin redduðust.
Hvaða jólalag er í uppáhaldi?
„Það myndi þá vera Silent night eða Heims um ból með Mahaliu Jackson. Það er rödd hennar sem hreyfir alltaf við mér.“
Hvaða hæfileikum þarf jólastjarnan að búa yfir?
„Jólastjarnan þarf að hafa fyrst af öllu góða rödd og vera músíkölsk. Svo er mikilvægt að hafa mikla útgeislun og öryggi. Um að gera að hafa gaman af því að syngja og tengja við hlustanda og áhorfanda. Það er margir þættir sem þurfa að koma saman,“ segir Björgvin að lokum.
Skráningu í Jólastjörnuna lýkur á miðnætti laugardaginn 20. október. Tólf krakkar verða í kjölfarið boðaðir í prufur og sigurvegarinn verður svo afhjúpaður í lokaþætti Jólastjörnunnar hjá Sjónvarpi Símans.
Aldurstakmark: 14 ára og yngri.
Skilyrði: Allir þátttakendur þurfa leyfi forráðamanna.
Dómnefnd: Björgvin Halldórsson, Selma Björnsdóttir, Svala Björgvinsdóttir og Jóhanna Guðrún Jónsdóttir.
Stjórnandi þáttarins: Gunnar Helgason.
Ef þú vilt taka þátt þá getur þú skráð þig HÉR.