Hótelerfinginn Paris Hilton og unnusti hennar, leikarinn Chris Zylka, eru sögð hafa slitið trúlofun sinni. Þetta staðfesta nokkrir heimildarmenn vefmiðilsins Just Jared. Höfðu þau áður frestað brúðkaupinu.
Eru þau sögð hafa hætt saman fyrr í mánuðinum. Hin 37 ára gamla Hilton hefur verið að gera það gott sem plötusnúður og er sögð ætla að einbeita sér að því og ilmvatnslínu sinni. Zylka ætlar sömuleiðis að snúa sér að leiklistinni og listinni.
Parið trúlofaði sig um síðustu áramót og var Hilton ekkert að reyna fela trúlofunina og brúðkaupsundirbúninginn.