Walt Disney Pictures hefur birt fyrstu stikluna úr endurgerð Konungs ljónanna en myndin verður frumsýnd í Bandaríkjunum 19. júlí á næsta ári.
Leikstjórinn John Farvreau leikstýrir myndinni sem er byggð á hinni sívinsælu teiknimynd Konungi ljónanna sem kom fyrst út árið 1994.
Margir þekktir leikarar og tónlistarfólk ljá dýrunum í myndinni rödd sína. Donald Glover mun tala fyrir Simba, Beyoncé Knowles fyrir Nölu og Seth Rogen fyrir Púmba. Þá mun James Earl Jones tala fyrir Múfasa í endurgerðinni líkt og hann gerði í upprunalegu myndinni. Stikluna má sjá hér fyrir neðan.