Barnsfaðir og kærasti raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner, Travis Scott, neyddist til þess að svara fyrir sig á Instagram í gær eftir að gefið hefði verið í skyn að hann hefði haldið fram hjá Jenner. People greinir frá því að myndir af manni sem líktist Scott fóru á flakk á netinu en maðurinn sást með annarri konu en Jenner.
Hann segist ekki þola að veita svona löguðu athygli en segir þó að nettröll vilji alltaf búa til eitthvert bull til þess að eyðileggja sanna ást. Hvetur hann fólk til þess að hætta að taka gleði frá þeim sem hafa það gott.
Í lokin sagðist hann ætla að halda áfram að fagna en í gær fagnaði hann því að lag hans Sicko Mode var á topplistum Billboard sem og plata hans Astroworld.