Kórstjóri með geggjaðar áskoranir

„Ætli það sé ekki lag Radiohead, þar sem til dæmis …
„Ætli það sé ekki lag Radiohead, þar sem til dæmis hljóma ellefu mismunandi raddir samtímis og á meðan er klappað og stappað,“ segir Gunnar Ben stjórnandi poppkórsins Vocal Project þegar hann er spurður að því hver sé geggjaðasta áskorun hans gagnvart kórnum á jólatónleikum ársins. mbl.is/Hari

Vocal Project-kórnum er margt til lista lagt, meðal annars að syngja sitt á hvað rokk og popp, þjóðlög og klassísk kórlög eins og ekkert væri. Og klappa og stappa kröftuglega í ofanálag þegar svo ber undir. Nú bregður svo við að yfirskrift aðventutónleika kórsins, kl. 17 laugardaginn 15. desember í Guðríðarkirkju, er Ljúfir tónar. Þeir sem kaupa miða á tix.is fá að sama skapi upplýsingar um að stemningin verði hugljúf. Kórstjórinn til margra ára, Gunnar Ben, best þekktur sem hljómborðsleikari Skálmaldar, lofar samt að tónleikagestir verði ekki frekar en fyrri daginn sviknir um klapp og stapp kórfélaga ásamt vitaskuld ljúfum tónum í bland við bráðfjörug lög – og sum jólajóla.

„Líkt og venjulega höfum við æft hvort tveggja samfara söngnum, enda flytjum við hressileg lög inn á milli,“ segir Gunnar og kveinkar sér svolítið yfir kvörtunum sumra kórfélaga sem finnst hann ganga fullhart fram í kröfum sínum um fótafimi og taktvisst klapp. „Viðfangsefnin eiga alltaf að vera aðeins erfiðari en síðast – sífellt meiri áskorun. Klappið og stappið eru meðal stóru áskorananna og kalla auk þess á að sungið sé blaðlaust, sem er miklu erfiðara. Og meira og minna án undirleiks, þótt ég spili undir á píanó í einhverjum lögum.“

Engar reglur um tónlistarstíla

Gunnar segir markmið aðventutónleikanna fyrst og fremst að skapa notalega stund í skammdeginu og jólastressinu; bjóða fólki að slaka á og hlusta á fallega tónlist. „Við völdum lög sem eru þekkt í flutningi George Michaels, Eds Sheerans, Procol Harum, Radiohead, Cyndi Lauper og fleiri, og okkur þótti henta til að skapa hugljúfa stemningu án þess að vera endilega jólalög. Einnig tökum við lag eftir kanadíska nútímatónskáldið Eleanor Daley, sem hún samdi sérstaklega fyrir blandaðan kór og á ekkert skylt við dægurtónlist. Vocal Project-kórinn er þekktur fyrir að fara eigin leiðir. Við höfum engar reglur um tónlistarstíla, fjölda rafmagnsgítara eða þvíumlíkt á tónleikum og syngjum bara það sem okkur langar til að syngja. Annað slagið læðist því hefðbundin kórtónlist inn í efnisskrána,“ segir Gunnar, sem sjálfur gerði tvær kórútsetningar fyrir tónleikana. Annars vegar á Radiohead-lagi og hins vegar á jólalaginu Nú mega jólin koma fyrir mér, sem Sigurður Guðmundsson og Memfismafían gerðu vinsælt um árið.

„Áherslan hefur þó alltaf verið mest á dægurtónlist frá ýmsum tímum, ekki bara samtímanum. Kórinn var að vísu stofnaður sem poppkór árið 2010, en þá frekar í upphaflegu merkingunni „popular music“ eða vinsæl tónlist.“

Procol Harum og Johann Sebastian Bach

Elsta lagið sem kórinn flytur á tónleikunum er A Whiter Shade of Pale, sem Procol Harum gerði vinsælt árið 1967 en er að sögn Gunnars í raun verk eftir Johann Sebastian Bach frá átjándu öld og byggt á verkinu Aríu á g-streng. Nýjasta lagið er úr söngvamyndinni The Greatest Showman frá því í fyrra.

Á efnisskránni eru sextán lög, en gætu orðið fleiri ef tónleikagestir eru jafn klappsamir og kórinn, eins og Gunnar ljóstrar upp. Spurður hvað ráði lagavalinu vísar hann á lagavalsnefnd með raddformenn í broddi fylkingar. „Þeir safna saman óskum kórfélaga og gera lagalista. Síðan funda ég reglulega með nefndinni, kem með hugmyndir og við púslum þessu svona saman í sátt og samlyndi.“

Efnisskrá aðventutónleikanna er unnin á sumrin og þessa dagana er nefndin að raða saman efnisskrá fyrir vortónleikana. Fyrir utan hefðbundið sumarfrí eru æfingar vikulega árið um kring fyrir tvenna tónleika á ári, einnig aukaæfingar, sérstakar raddæfingar og æfingabúðir. „Í stað þess að halda marga tónleika á ári höfum við kosið að leggja meira í tvenna; að vori og svo annaðhvort á aðventunni eða eftir áramót, og bjóða upp á stærri, flóknari og erfiðari efnisskrá frekar en að æfa nokkur einföld lög bara svona þokkalega. Vortónleikarnir eru yfirleitt stærri en aðventutónleikarnir, meiri hávaði, hljóðkerfi og hljómsveit,“ segir Gunnar og bætir við að á aðventunni sé stemningin á rólegri nótunum og henti vel í Guðríðarkirkju, þar sem hljómurinn sé einstaklega fallegur.

Krefjandi útsetningar

Vocal Project er blandaður kór 80 kvenna og karla, þar af syngja um 70 á tónleikunum. Eins og yfirleitt í slíkum kórum eru konur í miklum meirihluta. „Þetta með kynjahlutfallið í blönduðum kórum er einhver lenska, en ég er samt óvenju heppinn að vera með tíu bassa og tólf tenóra, sem aðrir kórstjórar öfunda mig mikið af,“ segir Gunnar. „Auk allra fallegu kvenraddanna,“ bætir hann við.

Í ljósi þess að í tilkynningu frá Vocal Project um tónleikanna segir að lögin séu í skemmtilegum og kefjandi útsetningum og Gunnar hafi sett upp fyrir kórinn geggjaðar áskoranir er lag að spyrja hver sé sú geggjaðasta:

„Ætli það sé ekki lag Radiohead, þar sem til dæmis hljóma ellefu mismunandi raddir samtímis og á meðan er klappað og stappað.“

Eru kórfélagar ekki alveg búnir á því eftir svona átök?

„Tja, mér hefur sýnst sumir horfa á mig ásökunaraugum eftir æfingar. En, nei í alvöru, allir taka þátt af lífi og sál og hafa gaman af. Kórinn er enda ungur og sprækur, flestir milli tvítugs og fimmtugs,“ svarar Gunnar.

Spurður frétta af Skálmeldingum, eins og hann kallar sveitunga sína, segir hann þá vera í Evróputúr um þessar mundir. Sjálfur hafi hann ekki komist með vegna aðventutónleika Vocal Project og annarloka í Listaháskóla Íslands þar sem hann er aðjúnkt og fagstjóri skapandi tónlistarmiðlunar í tónlistardeild. Eitthvað verði stundum undan að láta.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur til einmanaleika og einangrunar. Biddu um aðstoð, það er engin skömm að því. Börnin krefjast athygli þinnar sem aldrei fyrr.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes