Aldursmunurinn truflar ekki Gyllenhaal

Jake Gyllenhaal er kominn með nýja kærustu.
Jake Gyllenhaal er kominn með nýja kærustu. AFP

Leikarinn Jake Gyllenhaal er kominn með nýja kærustu og sást með henni í rómantískum göngutúr í París á öðrum degi jóla. Nýja konan í lífi Gyllenhaal er aðeins 22 ára gömul frönsk fyrirsæta að nafni Jeanne Cadieu en sjálfur er Gyllenhaal 38 ára. 

Sextán ára aldursmunurinn er þó ekki að trufla turtildúfurnar en eins og Us Weekly  greindi frá í síðustu viku mun Cadieu vera þroskuð miðað við aldur. Þau eru sögð hafa tekið hlutunum rólega en sambandið mun þó vera alvarlegt. 

Parið hefur reynt að fara varlega og fylgja til að mynda ekki hvort öðru á samfélagsmiðlum. Þau hafa þó verið að hittast í dágóðan tíma en þau sáust saman í júlí í London og í Grikklandi mánuði seinna. 

View this post on Instagram

A post shared by Jeanne Cadieu (@jeannecadieu) on Oct 24, 2018 at 3:38pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson