Stjörnuparið Irina Shayk og Bradley Cooper mætti saman á Golden Globe-verðlaunin um síðustu helgi og virtust ástfangin upp fyrir haus. Parið sem á saman tæplega tveggja ára gamla dóttur er lítið fyrir að koma fram saman en spurning hvort nú sé breyting á.
Hvort sem rússneska fyrirsætan og bandaríski leikarinn hafi sett upp leikrit eða hreinlega verið svona ástfangin um síðustu helgi er nokkuð ljóst að um breytingu er að ræða. Parið mætti aftur saman á galakvöld í New York á miðvikudaginn. Parið hefur lítið sést saman á opinberum vettvangi og samkvæmt Harper's Baazar hafa þau afar sjaldan komið fram saman opinberlega.
Parið byrjaði saman í janúar 2015 stuttu eftir að Shayk hætti með knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo og hefur alla tíð reynt að halda sambandinu út af fyrir sig. Stundum birtast fréttir af rifrildum parsins. Í haust var Shayk til að mynda talin hafa verið í fýlu á matsölustað með Cooper en sjálfur var hann sagður þunglyndislegur. Árið 2016 birtist myndband af þeim á tennisleik þar sem Shayk virtist þurrka tár en Cooper gera lítið til að hugga hana.
Bradley Cooper trying not to have a fight with his girlfriend in the middle of Wimbledon. pic.twitter.com/B6yZWWLJTX
— John Dabkovich (@JohnDabkovich) July 10, 2016