Efnisveitan Netflix lítur ekki á sambærilegar efnisveitur sem sína stærstu samkeppnisaðila heldur tölvuleikinn Fortnite. Þetta kemur fram á vef Variety en efnisveitur á borð við Amazon, Hulu, Disney og Warner Media reyna að keppa við Netflix.
„Við keppum við (og töpum á móti) Fortnite frekar en HBO,“ kom fram í bréfi Netflix til fjárfesta. Fortnite-tölvuleikurinn var afar vinsæll á síðasliðnu ári og talinn vera með 200 milljónir spilara.
Þrátt fyrir að Fortnite ógni Netflix er Youtube enn stór keppinautur í augum stjórnenda efnisveitunnar. Í fyrra kom upp sú staða að fólk átti erfitt með að fara inn á Youtube í 90 mínútur og fann Netflix fyrir auknu áhorfi á meðan.