Netflix kaupir réttinn á Rétti

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fer með aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttaröðinni Réttur 3.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fer með aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttaröðinni Réttur 3. Ljósmynd/Sagafilm

Streymisveitan Netflix hefur tryggt sér dreifingarréttinn á íslensku sjónvarpsþáttaröðinni CASE, eða Rétti 3, eins og þættirnir nefnast á frummálinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sagafilm. 

Rétturinn nær til Þýskalands, Frakklands, Ítalíu, Spánar og Suður Ameríku og hafa þættirnir nú þegar verið teknir til sýninga á öllum nýju mörkuðunum. Þættirnir hafa áður verið aðgengilegir á Netflix í Bandaríkjunum, Norðurlöndunum og um 30 öðrum mörkuðum. Markaðirnir eru því orðnir yfir 100 þar sem serían hefur verið sýnd þar sem HBO Europe sýndi í Austur-Evrópu og Walter Presents í Bretlandi.

„Það er afar ánægjulegt að Netflix skuli vilja bæta við mörkuðum þremur árum eftir frumsýningu, þetta eru stærstu markaðir í Evrópu og svokallaðir „dub“ markaðir þar sem efnið er oftast talsett á heimatungumálum í hverju landi fyrir sig, þetta er því veruleg fjárfesting sem Netflix er að setja í seríuna,“ er haft eftir Kjartani Þór Þórðarsyni, einum framleiðenda þáttaraðarinnar, í tilkynningu. 

Þættirnir sem framleiddir voru af Sagafilm voru fyrst sýndir á Stöð 2 haustið 2015 undir nafninu Réttur 3. Netflix hefur talsett þættina á þýsku, frönsku, spænsku, ítölsku og portúgölsku. Þættirnir hafa fengið mikið lof gagnrýnanda og voru t.d á lista New York Times yfir bestu þáttaraðir ársins 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson