Tónlistarkonunni Bebe Rexha var sagt að hún væri „of stór“ til þess að fá sérhannaðan kjól frá hönnuðum. Rexha er tilnefnd til Grammy-verðlauna og hefur haft samband við nokkra hönnuði til þess að fá sérhannaðan kjól fyrir verðlaunahátíðina. Hún kom að lokuðum dyrunum hjá öllum þeim sem hún hafði samband við, en tónlistarkonan klæðist fötum í stærð 6-8.
Rexha tjáði sig um þetta í myndbandi á Instagram. „Ef stærð 6/8 er „of stórt“ veit ég ekki hvað ég á að segja ykkur. Ég vil ekki klæðast fjandans kjólunum ykkar, því það er klikkað. Þið eruð að segja að allar konur í heiminum sem eru í stærri stærðum en 8 séu ekki nógu fallegar og að þær geti ekki klæðst kjólunum ykkar.“
Hún nefndi ekki hönnuðina sem höfðu neitað henni á nafn, en sagðist þó ætla að mæta á verðlaunahátíðina 10. febrúar næstkomandi.
Rexha er ekki sú fyrsta til þess að stíga fram og segja frá erfiðleikum sínum í samskiptinum við hönnuði. Leikkonan Megan Mullally sagði nýverið frá því að hún hafi þurft að kaupa kjól sinn fyrir Screen Actor Guild-verðlaunahátíðina á netinu.
Leikkonan Rachel Bloom sagði frá því í viðtali að Gucci kjóllinn sem hún klæddist á Emmy-verðlaunahátíðinni 2017 hafi verið keyptur í búð, en ekki sérhannaður.
Melissa McCarthy, sem er meðal annars þekkt fyrir hlutverk sitt í Gilmore Girls, hefur sömu sögu að segja. „Ég spurði fimm eða sex hönnuði, mjög virta hönnuði sem hanna kjóla fyrir fullt af fólki, og þeir sögðu allir nei,“ sagði hún í viðtali við Redbook Magazine árið 2012.