Bieber-hjónin fresta brúðkaupsveislunni

Bieber-hjónin ætla að gefa sér góðan tíma til þess að …
Bieber-hjónin ætla að gefa sér góðan tíma til þess að skipuleggja brúðkaupsveisluna, enda liggur ekkert á, þau eru nú þegar gift. AFP

Kanadíski tónlistarmaðurinn Justin Bieber og eiginkona hans, Hailey Bieber, eru búin að fresta brúðkaupsveislu sinni samkvæmt heimildum slúðurmiðilsins TMZ.

Hjónin giftu sig á seinasta ári en héldu ekki formlega brúðkaupsveislu í kjölfarið. Þau ætluðu því að bjóða fjölskyldu og vinum í athöfn og veislu 28. febrúar. Nú er hins vegar búið að fresta veisluhöldunum því að nokkrir úr fjölskyldunni komast ekki nefndan dag. 

Samkvæmt heimildum TMZ verður brúðkaupsveislan ekki á næstunni heldur vilja þau gefa fjölskyldu sinni og vinum lengri fyrirvara. 

Ólíklegt er að gestalistinn breytist en meðal þeirra sem var boðið í veisluna 28. eru Kylie Jenner, Travis Scott, Chris Brown, Drake og Odell Beckham Jr. Ásamt þeim er fjölskyldu Hailey einnig boðið en fjölskylda hennar, Baldwin-fjölskyldan, er sannkölluð Hollywood-fjölskylda. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson