Systir Meghan skýtur föstum skotum

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex.
Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex. mbl.is/AFP

Hálfsystir Meghan hertogaynju, Samantha Markle, er ósátt við viðtal People við ónafngreindar vinkonur Meghan. Kallar hún fréttina falska frétt á lokuðum Twitter-reikningi sínum er fram kemur á vef Daily Mail

Í viðtalinu við People kemur fram að hálfsystkini Meghan hafi ekki verið hluti af lífi hennar og faðir Meghan hringi aldrei né sendi skilaboð heldur vilji bara komast í fjölmiðla. Virðist Samantha taka því sérstaklega illa hvernig talað var um föður þeirra í greininni. 

Segir hún fréttina vera algjöra vitleysu og segir fullt af skilaboðum og kvittunum sem sanni annað. „Og sá sem er fullur sjálfsaðdáunar og ríkur borgar mjög dýrum almannatenglum til þess að breyta því hvernig fólk sér þig,“ skrifar systir Meghan og segir vinkonurnar í fréttinni ekki vera til. 

Samantha er engan veginn hætt að gagnrýna systur sína og segir að ef hún geti skrifað uppbyggileg orð á banana til kvenna í vændi geti hún alveg eins talað við föður þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson