Kanye West kom eiginkonu sinni, Kim Kardashian, svo sannarlega á óvart á degi elskenda í dag þegar hann gerði sér lítið fyrir og fyllti eina stofuna þeirra af rósum. Í miðju rósahafinu stóð svo saxófón-goðsögnin Kenny G. og lék ljúfa tóna fyrir parið.
„EKKERT STÓRMÁL, KENNY G. Í STOFUNNI MINNI!!! Gleðilegan Valentínusardag,“ segir Kim á Twitter þar sem hún birtir myndskeið af uppákomunni.
NO BIG DEAL KENNY G IN MY LIVING ROOM!!! Happy Valentines Day 💋💋💋 pic.twitter.com/A1GD0UlEwu
— Kim Kardashian West (@KimKardashian) February 14, 2019
Kenny tók nokkra þekkta slagara líkt og „Somewhere over the rainbow“ og líkt og sjá má á myndskeiðinu er Kanye í skýjunum, sannfærður um að hann hafi „sigrað Valentínusardaginn“ með uppátækinu.
Kim virðist að minnsta kosti vera í skýjunum þar sem hún segir í annarri færslu að Kanye eigi skilið verðlaun fyrir að vera besti eiginmaður í heimi.
Kim lét sér ekki nægja að flagga ást sinni á eiginmanninum á Twitter heldur birti hún líka mynd af þeim á Instagram þar sem hún óskar fylgjendum sínum til hamingju með daginn áður og sendir eiginmanninum ástarkveðju.
View this post on InstagramHappy Valentines Day babe!!! I love you so much! 🥰
A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on Feb 14, 2019 at 6:23am PST