Leikkonan Diane Keaton á að baki ástarsambönd við menn á borð við Woody Allen, Warren Beatty og Al Pacino. Hin 73 ára gamla leikkona hefur verið ein í nokkuð mörg ár og segir í nýju viðtali við InStyle að hún hafi ekki farið á sefnumót í 35 ár.
„Aldrei,“ svaraði Keaton þegar hún var spurð að því hvort menn bjóði henni á stefnumót. „Ég hef ekki farið á stefnumót í, ég myndi segja, 35 ár. Engin stefnumót,“ hélt Keaton áfram og vildi koma þessum upplýsingum á hreint. Keaton sagði í viðtalinu að hún ætti mikið af karlkynsvinum og reyndar mikið af vinum yfir höfuð. Hún færi þó ekki á stefnumót.
Leikkonan á tvö börn sem hún ætttleiddi árið 1996 og 2001. Hún ákvað að verða móðir eftir lát föður síns þá orðin fimmtug.