Leikkonan Halle Berry fagnaði 53 ára afmælisdeginum sínum í gær með því að birta sjóðandi heita mynd af sér í hvítum blautum hlýrabol. Á hlýrabolnum stendur „No bra club“ eða „Enginn brjóstahaldari-klúbburinn“ og því eðli málsins samkvæmt glittir í geirvörtur hennar.
Berry heldur sér í góðu formi, enda hefur hún atvinnu af því að leika í hasarmyndum. Síðast mátti sjá hana á hvíta tjaldinu í hasarmyndinni John Wick: Chapter 3 þar sem hún lék á móti hjartaknúsaranum Keanu Reeves.
View this post on InstagramA post shared by Halle Berry (@halleberry) on Aug 14, 2019 at 9:53am PDT