Fótboltamaðurinn Wayne Rooney er hættur að drekka til að bjarga hjónabandinu sínu samkvæmt heimildum The Sun. Rooney flytur bráðlega aftur til Bretlands, meðal annars til að vera nær fjölskyldu sinni en hann var búsettur í Bandaríkjunum.
Rooney hefur verið kvæntur eiginkonu sinni Coleen í ellefu ár. Samkvæmt heimildamanni The Sun drakk hann mikið þegar hann átti heima í Bandaríkjunum. „Hann flytur aftur heim í október og vill laga allt. Hann vill algjörlega nýtt upphaf og veit að hann verður að skera á óheilbrigt samband sitt við flöskuna til að bjarga fjölskyldunni,“ er haft eftir heimildarmanninum.
Wayne og Coleen Rooney eiga fjögur börn saman, þau Kai, Klay, Kit og Cass en það elsta er 9 ára og yngsta 18 mánaða. Fótboltakappinn þurfti að fara til ráðgjafa til að takast á við tap Englendinga gegn Íslandi á EM árið 2016. Þá bað eiginkona hans hann um að hætta að drekka líka, en hann hefur ekki látið verða af því fyrr en nú.
View this post on InstagramMerry Christmas everyone 😃❤️💞🎅🏼🎄
A post shared by Coleen Rooney (@coleen_rooney) on Dec 25, 2018 at 8:54am PST