Hættar saman eftir mánaðarlangt samband

Búið spil hjá Miley Cyrus og Kaitlynn Carter.
Búið spil hjá Miley Cyrus og Kaitlynn Carter. skjáskot/Instagram

Eldurinn hefur slokknað jafn fljótt og hann kviknað í ástarsambandi tónlistakonunnar Miley Cyrus og Kaitlynn Carter. Þær Cyrus og Carter höfðu verið í sambandi í um mánuð þegar var tilkynnt um sambandsslit þeirra á laugardag. 

Ástæðan fyrir sambandsslitunum er sögð vera að Cyrus sé ekki tilbúin í alvarlegt samband.

Cyrus og Carter sáust fyrst saman sömu helgi og tilkynnt var að Cyrus væri skilin að borði og sæng við leikarann Liam Hemsworth. Carter hafði þá einnig nýlega tilkynnt að hún væri skilin við eiginmann sinn Brody Jenner.

Þær Cyrus og Carter voru ansi nánar þennan rúmlega mánuð sem þær voru saman og sendu fyrrverandi eiginmanni Carter afmælisgjöf saman. Þær eru einnig sagðar hafa verið byrjaðar að búa saman. 

Cyrus lét engan bilbug á sér finna um helgina þar sem hún kom fram í Las Vegas, en fjölskylda hennar var þar mætt henni til stuðnings. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes