Leikkonan Stacey Dash, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Clueless, var handtekin á sunnudagskvöld grunuð um að hafa beitt eiginmann sinn ofbeldi.
Dash er grunuð um að hafa veist að eiginmanni sínum Jeffrey Marty sem hún gekk að eiga á síðasta ári. Hún hringdi sjálf á Neyðarlínuna og sagði eiginmann sinn vera að beita sig ofbeldi. Þegar lögreglan kom hins vegar á staðinn var Marty allur í skrámum en Dash heil á húfi.
Dash var handtekin og færð í fangageymslu. Eiginmaður hennar kom svo fyrir dómara daginn eftir og greiddi trygginguna. Hún verður ekki ákærð.
Marty er fjórði eiginmaður Dash, en þau giftu sig eftir að hafa þekkst í aðeins 10 daga. Dash á tvö börn úr fyrri hjónaböndum og Marty á þrjú börn úr fyrra hjónabandi.