Raunveruleikaþáttastjarnan Kylie Jenner hefur eytt miklum tíma með tónlistarmanninum Drake síðastliðinn mánuðinn. Jenner hætti með kærasta sínum og barnsföður fyrr í haust eftir rúmlega 2 ára samband.
Drake hefur lengi verið vinur fjölskyldunnar og ber heimildum ekki saman um hvort Jenner og Drake séu bara vinir eða hvort þau hafi farið á stefnumót saman.
Hinni 22 ára gömlu Jenner var boðið í 33 ára afmæli kappans nú á dögunum og einnig í Hrekkjavöku-veislu rapparans. Sögusagnir herma að Jenner hafi ílengst í veislunni og ekki farið fyrr en undir morgun frá húsi rapparans.