Hin 23 ára gamla Lourdes Leon, dóttir söngkonunnar Madonnu, fékk heimsathygli um helgina fyrir þátttöku sína í fjölmennri orgíu. Orgían var gjörningur á listakaupstefnunni Art Basel í Miami í Bandaríkjunum.
Fatafyrirtækið Desigual í samstarfi við listakonuna Carlota Guerrero setti á svið orgíu þar sem fólk gekk inn í fötum frá fyrirtækinu. Fólkið afklæddi sig og kyssti hvert annað. Var dóttir Madonnu sem hefur reynt fyrir sér sem fyrirsæta síðustu ár fremst í hópnum.
Gjörningurinn hefur líklega ekki farið mikið fyrir brjóstið á poppdrottningunni Madonnu. Sjálf er söngkonan þekkt fyrir ögrandi framkomu á sviði.
View this post on InstagramA post shared by P E T E R D A V I S (@peterdavisnyc) on Dec 7, 2019 at 3:16am PST