Erum búin að brjóta öll siðferðimörk

Pálmi Gestsson leikur Howard Beale sem er ósáttur við að …
Pálmi Gestsson leikur Howard Beale sem er ósáttur við að vera rekinn eftir 25 ára starf sem fréttaþulur. Hann grípur í framhaldinu til örþrifaráða. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

„Ég er hugfanginn af þessu leikriti, enda magnað að lesa gamalt verk sem gæti hafa verið skrifað í dag,“ segir Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, sem leikstýrir Útsendingu sem frumsýnt var á Stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi.

Leikritið er eftir Lee Hall og byggist á Óskarsverðlaunamyndinni Network sem Paddy Chayefsky skrifaði handritið að. Það fjallar um fréttamanninn Howard Beale sem sagt er upp eftir 25 ára starf hjá sömu bandarísku sjónvarpsstöðvakeðjunni þar sem áhorfið hefur dalað. Hann tilkynnir áhorfendum að eftir viku muni hann svipta sig lífi í beinni útsendingu og skyndilega er fréttaþátturinn hans orðinn miðpunktur athyglinnar. Verkið spyr fjölda spurninga um vald fjölmiðla og áhrif þeirra á líf fólks.

„Í lok dags erum við að segja sögu og viljum að hún sé skýr. Við viljum að áhorfendur velti því fyrir sér hvernig leikritið endurspegli samtímann og hvort líkindin séu í lagi. Ég ætla ekki að svara þeirri spurningu,“ segir Gói og tekur fram að sér finnist miklu áhugaverðara að áhorfendur fái rými til að svara spurningunum fyrir sig.

„Það sem heillaði mig við þetta verk þegar ég las það var frásagnarmátinn, hvernig tæknin er notuð,“ segir Gói og bendir á að stærstur hluti verksins gerist í sjónvarpsstúdíói. „Í sýningunni höfum við bæði alla miðla leikhússins til að segja söguna og alla miðla sjónvarps- og kvikmyndaheimsins,“ segir Gói og viðurkennir að það sé vissulega ákveðin áskorun en á sama tíma skemmtilegt verkefni. „Við höfum til dæmis þurft að finna út úr því hvað leikararnir mega leika stórt fyrir kameruna án þess að það verði óeðlilegt og leika lítið án þess að það verði óeðlilegt fyrir sviðið og leikhúsáhorfendur.“

Í ljósi þess að verkið gerist á áttunda áratug síðustu aldar langar mig að forvitnast hversu langt listrænir stjórnendur ganga í að nálgast útlit og tækni þess tíma?

„Hvað útlit sýningarinnar varðar tókum við þá ákvörðun að láta útlit leikara, búninga og leikmuni endurspegla ritunartíma verksins, en það er skrifað 1975. En hins vegar ákváðum við að hafa nútímatækni. Við erum því með flatskjái og nútímamyndavélar sem skilar bestu mögulegu mynd. Okkur listrænu stjórnendunum fannst þetta mikilvægt. Höfundurinn hefur sjálfur lýst því í viðtölum að hann hafi skrifað verkið sem satíru á fjölmiðlaheiminn. Þegar maður les verkið árið 2020 virkar það hins vegar eins og heimildarleikhús eða nútímaleikhús. Sagan talar allt öðruvísi til okkar en 1975 þegar gefið var í skyn að við myndum lenda í vandræðum og brjóta öll siðferðismörk ef fram færi sem horfði. Í dag erum við búin að brjóta öll þessi siðferðismörk. Við erum hvert og eitt okkar sjónvarpsstjórar yfir okkar eigin fjölmiðli, hvort sem hann heitir Instagram, Facebook eða Snapchat. Af þeim sökum talar leikritið allt öðruvísi til okkar í dag en það gerði þá. Þess vegna fannst mér mikilvægt að brjóta tískuna sem við erum með á sviðinu. Við erum ekki að segja sögu af fólki í gamla daga heldur erum við að segja sögu af vandamálum sem við erum öll að glíma við í samtímanum. Fjölmiðlar beita þessu í formi klikkbeitna, við beitum þessu með ímyndarsköpun þegar við reynum að sýna umheiminum okkar bestu hliðar. Það er það sem heillaði mig við þetta leikrit. Þess vegna langaði okkur að undirstrika það enn frekar með því að hafa tæknina nútímalega,“ segir Gói og lýkur lofsorði á samstarfsfólk sitt.

„Ég er mjög lukkulegur með allt fólkið sem er í þessu ferðalagi með mér,“ segir Gói og vísar þar til Egils Eðvarðssonar sem hannar leikmyndina og Helgu I. Stefánsdóttur sem hannar búningar, en bæði hafa þau mikla reynslu úr sjónvarps- og kvikmyndabransanum sem nýtist vel í Útsendingu. „Svo er ég með Björn Helgason sem tæknistjóra sem sér um kameruvinnslu, þjálfun myndatökumannanna og hvernig við sendum efnið út á stóra tjaldið,“ segir Gói og bendir á að tæknilega væri hægt að fara í beina útsendingu frá Stóra sviðinu hvenær sem er.

Tæknin er fyrirferðarmikil á Stóra sviði Þjóðleikhússins í sýningunni Útsending …
Tæknin er fyrirferðarmikil á Stóra sviði Þjóðleikhússins í sýningunni Útsending sem frumsýnd var í gærkvöldi. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Þetta er svakalegt hlutverk

Talandi um áhöfnina, þá var skipt um lykilmann í brúnni í miðju ferli þegar Ingvar E. Sigurðsson þurfti að segja sig frá hlutverki Howards Beale og Pálmi Gestsson tók við keflinu. Hvernig horfði það við þér sem leikstjóra?

„Þetta gerðist í raun áður en æfingaferlið fór af stað þó vissulega værum við í listræna teyminu langt komin í okkar vinnu. Ingvar er að fylgja eftir gríðarlegum vinsældum kvikmyndarinnar Hvítur, hvítur dagur og sá fram á árekstra við leikhúsvinnuna sökum þessa. Hann er það mikill fagmaður að hann vildi ekki gera okkur það og steig til hliðar strax,“ segir Gói og tekur fram að hann gleðjist yfir velgengni Ingvars.

„Í mínum huga kom enginn annar til greina í hlutverkið en Pálmi Gestsson, þar sem hann hefur þá stærð, orku og nærveru sem hlutverkið krefst,“ segir Gói og bendir á að hlutverk Howards Beale sé einstaklega krefjandi. „Þetta er svakalegt hlutverk. Fyrir leikara að fá svona hlutverk er eins og að fá einn af stóru körlunum í Shakespeare. Þetta er mikill texti, það eru miklar tilfinningar með tilheyrandi blæbrigðum. Þú þarft að hafa fullkomið vald á tækninni þinni til að takast á við þetta hlutverk. Og Pálmi er í svakalegu formi enda búinn að leika mjög mikið. Ég hlakka til að fá áhorfendur í salinn til að njóta listar hans – sem og allra annarra í sýningunni, því ég er með stórskotalið leikara. Ég vakna á hverjum morgni og þarf að klípa mig til að sannfærast um að ég sé í raun að fá að upplifa drauminn minn um að starfa í leikhúsinu.“

Guðjón Davíð Karlsson leikstýrir Útsendingu.
Guðjón Davíð Karlsson leikstýrir Útsendingu. mbl.is/Árni Sæberg

Það hefur ekki farið mjög mikið fyrir þér á leiksviðinu síðan Shakespeare verður ástfanginn var frumsýnt í haust þar sem þú ferð á kostum sem leikhússtjórinn Henslowe. Ertu nokkuð hættur að leika og sestur í stól leikstjórans einvörðungu?

„Alls ekki. Ég ætla hins vegar að sinna föðurhlutverkinu næstu mánuði, en sný aftur á svið í haust,“ segir Gói, sem eignaðist dreng fyrir fjórum mánuðum sem er þriðja barn hans. Aðspurður segist Gói aldrei hafa litið á leikarastarfið sem ófjölskylduvænt starf þótt það feli í sér kvöld- og helgarvinnu. „Konan mín er ljósmóðir og vinnur vaktavinnu, sem er ekkert frekar fjölskylduvænt en leikarastarfið samkvæmt skilgreiningu. En saman lifum við mjög fjölskylduvænu lífi því stundum erum við bæði í fríi heilu dagana og stundum er hún að vinna og ég í fríi og öfugt. Þannig að þetta er fullkomið púsluspil. Öll störf hafa bæði kosti og galla, en ég reyni að lifa lífinu þannig að ég horfi frekar á plúsana,“ segir Gói og bendir á að Þjóðleikhúsið sé mjög fjölskylduvænn vinnustaður. „Krökkunum mínum finnst mjög gaman í leikhúsi og mæta með mér í vinnuna á starfsdögum. Þeim er tekið opnum örmum af samstarfsfólki og hafa setið heilu og hálfu æfingarnar og hafa gaman af,“ segir Gói, en eldri börnin hans eru átta og ellefu ára.

Vill að mestur tími fari í það sem er skemmtilegt

„Fyrir fimm árum var ég í viðtali spurður hvort ég hefði áhuga á að leikstýra og þá svaraði ég því neitandi. En í millitíðinni gerðist eitthvað og áhuginn kviknaði án þess að ég kunni skýringu á því. Mig fór að langa til að segja sögu, ekki bara á sviðinu heldur líka að búa til sögu með öðrum. Mér finnst mjög gaman að leikstýra. Eitt af því sem er svo gaman við starfið í leikhúsinu er að fá tækifæri til að gera alls konar sem aftur viðheldur neistanum svo maður fær ekki svo auðveldlega leiða á vinnunni. Það eru 35 ár síðan ég tók þá ákvörðun aðeins fimm ára gamall að ég vildi verða leikari og í dag nýt ég þeirra forréttinda að fást við það sem mig dreymdi alltaf um,“ segir Gói og tekur fram að hann langi til að leikstýra meira í framtíðinni meðfram leikarastarfinu.

„Ég er með mikla leikreynslu og hef unnið með mjög mörgum leikstjórum og veit sökum þess alveg hvernig leikstjóri ég vil verða. Fyrir mér snýst þetta umfram allt um að ég vil skapa þægilegt og öruggt starfsumhverfi. Ég vil að öllum líði vel og það sé gaman á æfingum, enda verður enginn þvingaður til sköpunar. Ég er að eðlisfari mjög jákvæður og finnst mikilvægt að öllum líði vel á æfingum. Mér finnst líka mikilvægt að leikhópurinn finni að hann hafi fullt traust og frelsi til að skapa. Ég spyr sjálfan mig eftir hverja einustu æfingu hvort ég hefði sjálfur viljað vera leikari á umræddri æfingu og líka hvort ég hefði getað gert eitthvað betur og þannig reyni ég sífellt að bæta mig,“ segir Gói og jánkar því að hann sé mjög skipulagður.

„Í samstarfi okkar listrænu stjórnenda settum við strax upp mjög skýrt plan og á fyrsta samlestri kynnti ég æfingaplan sem náði alveg fram að frumsýningu svo leikhópurinn vissi hvernig við ætluðum að vinna þetta. Þetta hefur mér oft fundist vanta þegar ég er að leika hjá öðrum, því oftast fær maður bara æfingaplan sem nær viku fram í tímann. Ég held að góð skipulagning hafi skilað okkur á þann stað að við vorum löngu farin að renna verkinu tveimur vikum fyrir frumsýningu, þó að við verðum auðvitað í fínstillingu alveg fram að frumsýningu. Ég reyni alltaf að vera vakandi fyrir því hvað gagnast best til að nýta tímann sem best þannig að sem mestur tími fari í það sem er skemmtilegt – sem er að búa til og skapa.“

Viðtalið við Góa birtist fyrst í Morgunblaðinu fimmtudaginn 20. febrúar. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þú sért skipulagður sjálfur geturðu ekki ætlast til að aðrir séu eins. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Sólveig Pálsdóttir
3
Moa Herngren
4
Ragnar Jónasson
5
Jojo Moyes