Stjörnuparið fyrrverandi Kylie Jenner og Travis Scott eru talin vera byrjuð saman aftur. Jenner gaf sterka vísbendinu þess efnis á Instagram um helgina. Jenner og Scott eiga saman tveggja ára gamla dóttur en hættu saman síðasta haust.
Keeping Up With the Kardashians-stjarnan birti gamlar myndir í sögu á Instagram af þeim Scott. Jenner og Scott eru á körfuboltaleik á myndunum, horfast í augu og tala saman. Myndirnar eru frá árinu 2017. Jenner birti myndirnar nokkrum tímum eftir að hún birti mynd af sér í strigaskóm sem Scott hannaði fyrir Nike.
Formleg útskýring á sambandsslitunum í haust var sú að parið hefði tekið sér pásu. Halda nú margir að pásan sú búin og parið byrjað aftur saman.