Styttist í Jarðarför Ladda

Þættirnir Jarðaförin mín munu koma inn á Sjónvarp Símans Premium um páskana. Með aðalhlutverk fer Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi. Sex þættir eru í seríunni en þeir fjalla um mann sem greinist með ólæknandi heilaæxli sama dag og hann kemst á eftirlaun.

Hann hefur eytt síðustu áratugunum í tilgangslausa rútínu, fjarlægst fjölskyldu sína og ekki lifað lífinu sem skyldi. Nú eru tvær vikur þar til hann fer í skurðaðgerð sem mun að öllum líkindum draga hann til dauða. Hann ákveður að bæta upp fyrir tapaðan tíma með því að halda sína eigin jarðarför og vera sjálfur viðstaddur.

Það er samt ekki eins einfalt og það hljómar. Fyrrverandi eiginkonan, einkasonurinn og tengdadóttirin hafa lítinn skilning fyrir þessum áformum, hvað þá barnabarnið sem dýrkar afa sinn og getur ekki hugsað sér að missa hann. Svo flækist málið enn frekar þegar ástin blómstrar á ný milli hans og fyrrverandi kærustu en hún er einmitt presturinn sem á að jarðsyngja hann.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes