Leikarinn Ben Affleck virðist vera búinn að finna ástina á ný eftir stormasöm ár lituð af skilnaði og alkóhólisma. Myndir náðust af Affleck og mótleikkonu hans, Önu de Armas, í faðmlögum á ströndinni í Kosta Ríka í vikunni.
Affleck og De Armas léku saman í kvikmyndinni Deep Waters en tökum á henni lauk fyrr í marsmánuði. Þau voru svo á ferðalagi um heimaland hennar, Kúbu, í síðustu viku. Þá voru sögusagnir á kreiki um að þau væru meira en bara vinir.
Myndirnar af ströndinni í Kosta Ríka virðast svo staðfesta þær sögusagnir að þau hafi fellt hugi saman. Affleck verður 48 ára síðar á þessu ári en De Armas verður 32 ára og því skilja 16 ár þau að. Í kvikmyndinni Deep Water leika þau Affleck og De Armas hjón.
Affleck var áður í hjónabandi með leikkonunni Jennifer Garner og eiga þau þrjú börn saman. Þau skildu árið 2018.