Kristinn Óli Haraldsson eða Króli eins og hann er kallaður lék sitt fyrsta hlutverk í Bjarnfreðarsyni. Hann segir frá þessu í þættinum Mannlífi sem er í umsjón Evu Ruzu. Hægt er að horfa á alla þáttaröðina í Sjónvarpi Símans Premium.
Hvað gerist þegar maður er afbrýðisamur? Hvað borðar Þorgerður Katrín í morgunmat og hvernig hannar maður skó? Hvernig breytast sunddrottningar í Hollywood-leikkonur og hvað hlaupa sjötugir karlar hratt? Samfélagsmiðlastjarnan og gleðigjafinn Eva Ruza svarar þessum og fleiri áríðandi spurningum í nýju þáttunum sínum.
Eva kennir áhorfendum að elda og drekka kaffi, skoðar áhugaverða hönnun og hittir alla vega fólk sem er að gera allavega hluti. Jóga, béarnaise og Jógvan – hver sem spurningin er, þá hefur Eva svarið í Mannlífi.