Meikar ekki sens er splunkuný íslensk þáttaröð sem var að lenda í Sjónvarpi Símans Premium. Þættirnir eru ferskir og orkumiklir sketsaþættir.
Þrátt fyrir ungan aldur hafa höfundar og leikarar þegar skapað sér nafn í skemmtanabransanum og mæta nú til leiks með sína fyrstu sjónvarpsþáttaröð.
Með aðalhlutverk fara Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson, Ásgrímur Gunnarsson, Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Kolbrún María Másdóttir.