Sást með annarri konu mánuði eftir skilnað

Brian Austin Green og Megan Fox standa nú í skilnaði.
Brian Austin Green og Megan Fox standa nú í skilnaði. Cover Media

Leikarinn Brian Austin Green sást um helgina á veitingastað í Los Angeles í Bandaríkjunum með raunveruleikastjörnunni Courtney Stodden. Green stendur nú í skilnaði við eiginkonu sína Megan Fox en þau tilkynntu um skilnað sinn fyrir um mánuði.

Samkvæmt heimildum People sóttu Green og Stodden matinn á veitingastaðinn en Green hafði þá þegar greitt fyrir matinn. „Þau litu ekki út fyrir að vera í sambandi,“ sagði heimildarmaður People

Green og Fox tilkynntu um skilnað sinn stuttu eftir að Fox sást á rúntinum með mótleikara sínum Machine Gun Kelly.

Þau Green og Fox höfðu verið gift í tæplega 10 ár og eiga þrjá syni saman. 

Stodden er nýlega fráskilin en hún var gift leikaranum Doug Hutchinson. Hún tilkynnti að skilnaður þeirra hefði gengið formlega í gegn 3. mars síðastliðinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson