Heima með Helga snýr aftur um verslunarmannahelgina

Verður þú heima með Verslunarmanna-Helga?
Verður þú heima með Verslunarmanna-Helga?

Helgi Björnsson sem fylgdi þjóðinni í gegnum samkomubannið með þættinum „Heima með Helga“, ásamt Reiðmönnum vindanna, Vilborgu Halldórsdóttur og völdum gestum ætlar að snúa aftur, ásamt þessu fríða föruneyti um verslunarmannahelgina í Sjónvarpi Símans.
 
Sjónvarp Símans hefur sett tvær kvöldskemmtanir á dagskrá og ef veðrið spilar með, þá verður sent út úr garðinum hans Helga en annars verður söðlað um og farið inn í stofu. Hvort sem verður þá gildir það einu því stemningin verður á sínum stað og eins og allir vita þá finnst Helga rigningin góð. 
 
Helgi hefur farið um landið síðusta mánuði og skemmt landsmönnum augliti til auglitis og uppselt var á alla fjórtán tónleikanna þeirra félaga. „Við fengum svo falleg viðbrögð við tónleikaferðinni, eins og þáttunum, að maður fyllist auðmýkt. Nánast alls staðar þar sem ég fer fæ ég ítrekaðar óskir um að endurtaka leikinn. Þannig að núna, þegar þessi verslunarmanna-Helga-hugmynd kom upp þá er ekki hægt annað en að segja já,“ segir Helgi brosandi. „Það verður sumarbragur á þessum þáttum og gestakomur leyndó þangað til við teljum í.“
 
Þættirnir verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá laugardaginn 1. ágúst og sunnudaginn 2. ágúst. Partíið verður sýnt í beinni útsendingu og opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans, hér á mbl.is og í útvarpinu á K100 en þar verður talið í hverja dægurperluna á fætur annarri auk þess sem valinkunnir gestir ljá söngveislunni rödd sína. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes