„Maður fær bara gæsahúð“

Frá skrúðgöngu Skjaldborgar í fyrra.
Frá skrúðgöngu Skjaldborgar í fyrra.

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, verður haldin í fjórtánda sinn um verslunarmannahelgina, dagana 31. júlí til 3. ágúst 2020. Hátíðin er að vanda haldin í Skjaldborgarbíói á Patreksfirði.

Skjaldborg hlaut Eyrarrósina, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, fyrr á árinu. „Það hefur náttúrlega mjög mikil áhrif,“ segir Karna Sigurðardóttir sem stýrir hátíðinni ásamt framkvæmdateymi. „Það er vissulega töfrandi en líka svolítið flókið að skipuleggja viðburði utan höfuðborgarsvæðisins og það að Eyrarrósin sé yfir höfuð til er mjög mikilvægt.“

Karna Sigurðardóttir.
Karna Sigurðardóttir. Ljósmynd/Þórey Lára

Karna segir það skipta máli að viðburðir af þessu tagi fái viðurkenningu. „Þetta er stærsta viðurkenningin fyrir menningarviðburði á landsbyggðinni og auðvitað frábært að Listahátíð í Reykjavík standi fyrir henni. Það hefur rosalega mikla þýðingu fyrir okkur,“ segir hún. „Eyrarrósinni fylgir verðlaunafé, sem óneitanlega hefur mjög jákvæð áhrif því það að fjármagna svona hátíð er varla gerlegt verkefni.“

Karna segir þó að viðurkenningin sé það sem skiptir mestu máli. „Það að upplifa að það sé horft til þess sem verið er að gera vel.“ Hún nefnir einnig að þeir viðburðir sem fái Eyrarrósina séu til fyrirmyndar fyrir aðra. „Það er auðvitað gaman að vera í þeim hópi.“

Gaman að sjá fagið eflast

Í ár verða frumsýndar fjórtán heimildarmyndir á hátíðinni auk þess sem sjö verk í vinnslu verða kynnt. Myndirnar eru allar íslenskar eða með sterka tengingu við Ísland.

Heiðursgestur hátíðarinnar að þessu sinni er Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Hún hefur unnið ötullega að heimildarmyndagerð á Íslandi á ferli sínum. Mynd hennar Vasulka-áhrifin vann Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar, í fyrra.

Karna segir að í ár hafi borist metfjöldi umsókna. „Við fengum hátt í fjörutíu umsóknir. Maður fær náttúrlega bara gæsahúð. Þetta er gríðarleg breyting frá því þegar Skjaldborg var fyrst haldin. Það er virkilega gaman að sjá fagið eflast hér á Íslandi og að það eru fleiri og fleiri sem stíga inn í heimildarmyndagerð.“

Skjaldborg hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir heimildarmyndagerð á Íslandi en þar er fjöldi nýrra íslenskra mynda frumsýndur á ári hverju. „Þetta er stórt augnablik í lífi leikstjórans sem hefur kannski unnið að verkinu í mörg ár. Við sameinumst um þetta augnablik á Patreksfirði,“ segir Karna.

Taka á stóru málefnunum

Dagskrána segir Karna verða heilsteyptari með hverju árinu. „Gæðin eru upp úr öllu valdi,“ segir hún.

Hátíðin hefst með heimildarmynd um heimafæðingar á Íslandi, Aftur heim? og lýkur með mynd Jóhanns Jóhannssonar heitins, Endalok upphafsins eða Last and First Men. „Svo við förum alveg heilan hring í viðfangsefnum og allt þar á milli. Á Skjaldborg er öllu gert jafnhátt undir höfði þannig að við tölum ekki beint um hápunkta en auðvitað er það stór viðburður að myndin hans Jóhanns Jóhannssonar sé frumsýnd á hátíðinni og mjög ánægjulegt. Það er mikilvægt að halda utan um þetta frumsýningaraugnablik og við teljum Skjaldborg gera það sérstaklega fallega.“

Úr heimildarmynd Jóhanns Jóhannssonar heitins, Last and First Men.
Úr heimildarmynd Jóhanns Jóhannssonar heitins, Last and First Men.

Um viðfangsefni heimildarmyndanna á hátíðinni segir Karna: „Skjaldborg er alltaf skemmtileg, en þetta er samt ekkert léttmeti sem við erum að horfa á. Við erum að taka á stóru málefnunum í ár.“

Venja er að halda Skjaldborg um hvítasunnu en hátíðinni var frestað sökum kófsins. „Ég get ekki sagt að það hafi verið auðvelt að skipuleggja hátíð á þessum tímum. Það væri efni í annað viðtal. Skortur á upplýsingaflæði til menningarstjórnenda á þessum tímum hefur verið til háborinnar skammar. Allir aðrir hafa verið vel upplýstir, almenningur til dæmis, en það hefur verið algjör katastrófa fyrir okkur að eltast við upplýsingar,“ segir Karna.

Skipuleggjendur hafa þó reynt að láta það ekki á sig fá. „Hugmyndafræðin og stemningin á Skjaldborg hefur alltaf verið þannig að verkefnum er mætt með húmor, gleði og sköpunarkrafti. Við gerðum það í kófinu sem og gagnvart öðru sem við höfum mætt í gegnum tíðina. Maður verður bara að líta á það sem tækifæri þegar manni er sniðinn þrengri stakkur,“ segir Karna. „Þetta breytir dagskránni svolítið en það breytir því ekki að Skjaldborgarandinn fær að svífa yfir vötnum. Við ætlum að keyra áhugaverða, skemmtilega og fjörmikla hátíð.“

Ýmsir aðrir viðburðir sem að venju fara fram um verslunarmannahelgina falla niður í ár og því gæti verið að margir legðu leið sína á Patreksfjörð. Karna minnir á að armbandshafar hafi forgang á alla dagskrárliði. „Við finnum fyrir gífurlegum áhuga og höfum trú á að það gæti orðið svolítið góð traffík.“ Skipuleggjendur hvetji því fólk til að mæta tímanlega á viðburði. „Okkur er annt um að öllum líði vel í Skjaldborgarbíói og við þurfum öll að standa saman til að þetta geti gengið smurt.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Samræður við stjórnendur, foreldra og yfirboðara eru beinskeyttar og ákafar í dag. Alls kyns spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Harry Whittaker og Lucinda Riley
2
Ragnar Jónasson
3
Sólveig Pálsdóttir
4
Moa Herngren
5
Jojo Moyes