Tónlistarmaðurinn Drake birti mynd af sér með mikinn lubba í sögu á Instagram í byrjun árs. Hann var fljótur að eyða myndinni en aðdáendur hans eru enn í áfalli og vona að hann hafi ekki slegið tóninn fyrir nýtt ár með ljótu hárgreiðslunni.
Drake, sem er þekktur fyrir vel snyrt hár, var allt í einu kominn með lubba eða einhvers konar topp. Í hárinu mátti sjá móta fyrir hjarta. Myndin hefur farið á flug á Twitter. Dyggir aðdáendur vona að tónlistarmaðurinn hafi átt við myndina í myndvinnsluforriti og þetta sé ekki nýjasta hárgreiðsla hans. Myndin virðist þó vera tekin á hárgreiðslustofu.
Drake er þögull sem gröfin sem og talsmaður hans á meðan netverjar velta hárgreiðslunni fyrir sér.
Drake done put a curse on 2021 with this haircut pic.twitter.com/blMK3dyJmD
— Chxppa (@newchxppa) January 3, 2021