Tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen var handtekinn í New Jersey fyrir þremur mánuðum grunaður um ölvunarakstur. Hann var ákærður fyrir ölvunarakstur og að hafa keyrt óvarlega.
Springsteen var einnig grunaður um að hafa drukkið áfengi í lokuðum hluta þjóðgarðs þennan sama dag, 14. nóvember.
Samkvæmt talsmanni þjóðgarðsins var Springsteen mjög samvinnuþýður eftir að uppgötvaðist að hann hefði verið í garðinum.
Springsteen var gómaður aðeins nokkrum vikum eftir að hann gaf út sína 20. plötu, Letter to You.